á maður ekki að fara að koma með nýtt póst!!
Æj undanfarnar tvær vikur eru búnar að vera ansi leiðinlegar og erfiðar og hef haf lítið að segja bara. Við fréttum fyrir tæpum tveimur vikum síðan að herinn væri að fara að taka Jason frá okkur í meira en 10 mánuði og voru því síðastliðnar tvær vikur notaðar í að eyða sem mestum tíma með honum. Hann fór síðan á laugardaginn til Maine og mun vera þar þangað til skipið er full smíðað, sjóprófað og tilbúið að sigla hingað til San Diego sem á að vera eitthvern tíman í september/október. Við gríslingarnir eru því ein í koti á meðan, þekkjum eiginlega engan og látum okkur leiðast mikið. Ég er nú búin að reyna að vera dugleg alla helgina að halda þeim busy svo þau taki ekki eftir að daddy er farinn og ég held að það hafi tekist bara nokkuð vel. Núna hins vegar stend ég frami fyrir að þurfa að halda því áfram en ég veit ég get ekki, og bara hef ekki efni á að vera á fullu 24/7 með þau. Við tekur sem sagt þessa vikuna að læra að vera heima og gera hluti heima við án þess að eyða pening. Er samt að hugsa um að kaupa mér árspassa í Seaworld svo ég geti farið með krakkana þegar okkur leiðist, sérstaklega þar sem Seaworld er næstu í bakgarðinum mínum.
En já við eyddum sem sagt helginni, eftir að hafa skuttlað daddy á flugvöllinn, í outlet mollinu þar sem mamman reyndi að fata krakkana upp fyrir sumarið og líka tilvonandi Íslandsferð í sumar. Fattaði að núna er besti tíminn að kaupa einmitt föt fyrir Íslandsferðina þar sem vetrarfötin eru að fara á útsölur og er ég að stokka upp á gallabuxum og peysum fyrir bæði krílin því ég efast að mikið verði notaðar stuttbuxur og þessháttar á Íslandinu góða. Mamman keypti sér síðan einar gallabuxur og flip flop sandala. Var rosa hreikin af sjálfri mér að kaupa gallabuxur í stærð 12, eða svona þangað til ég steig á vigtina í morgun og sá að ég hafði þyngst um 4lbs um helgina!!!!!!!!!!! Verð að taka það af mér í vikunni sem ég veit ég get alveg sko. Ég verð einmitt að passa að nota ekki mat sem tól til að kópa við sársaukann að hafa ekki manninn mér við hlið á hverjum degin. Ég er frekar að reyna að komast í það mentalití að láta það verða surprice fyrir hann hvað mér hefur tekist að koma mér niður í á meðan hann er í burtu. Ég tók nokkrar myndir af mér í gær til að sjá muninn og hérna er mynd síða í sumar er ég var um 216lbs

Og svo þessi síðan í gær.... 192lbs

Ég sé alveg slatta mun í andlitinu á mér... t.d. er þessi tekin bara núna í september....
og svo þessi síðan í gær.... (n.b. báðar teknar með sama angle...)

Anyway... nóg af því... ætla að fara í gymmið núna og hlaupa af mér þessi 4 pund sem ég þyndist um um helgina.... bið því að heilsa og læt heyra í mér fljótlega.
knús og kossar....
Sigurborgin


5 skilaboð:
já vá þvílíki munurinn!! Til hamingju með þennan árángur! keep up the good work!!! :)
og já ekki láta sorgina stjórna þér... stjórnaðu frekar sorginni/söknuðinum :) :)
Sendi baráttukveðjur!
Kv Valdís Póst-eilífðar-stelpa.... sem þarf að missa 18 kg btw!!!!... arg!
Flott að þú getur tekur farið til Íslands í heimsókn með krakkana ! Til hamingju með horfnu pundinn. Mín er orðin 2 ára og ég á alltaf eftir að vinna á síðustu 10-15 pundunum !
Baráttukveðjur frá Deutschland,
Rúna
Mikið eru börnin falleg og hýr!
Þú lítur mjög vel út og mar sér góðann mun á þér! So keep it up!
Vonandi getur Jason komið heim í frí og svoleiðis. Þú hefur verið ein áður og getur þetta. En það er leiðinlegt, ég þekki það. Þú ert heppin að geta brotið þetta upp með ferð til Íslands.
Kær kveðja,
Sísí
Sigurborg:það sést stórmunur og þú lítur vel út-ert falleg, ekki gleyma því. Ég kann engin töfraráð með að láta tímann líða fljótar þar til J kemur heim en með því að fara til Íslands og gera hluti sem þú hefur talað um þá kannski líður þetta fljótar en þú hélst í fyrstu. Knús héðan:)
Thanks for this post. Have a happy holiday (shopping) season!
Skrifa ummæli