Hver hérna man ekki eftir Buglesinu góða? Í dag kom maðurinn minn mér á óvart með lítinn poka af Bugles eða eins og ameríkanarnis segja.... "bjúgels" og litla ungamamman var í skýjunum það sem eftir lifði dags! Ég nefnilega orðaði það við manninn minn (ungapabbann) hvað mig langaði mikið í bjúgels um helgina en hefði ekki séð það neinstaðar í langan langan tíma, eða réttara sagt hef ég ekkert verið að leita að því. Fékk bara eitthvað yfir mig á laugardaginn að langa í Bugles og hana NÚ!! Og ég sem held alltaf að hann hlusti ekkert á mig en svo kemur hann mér á óvart eins og í dag! Þannig að kvöldið í kvöld fór í "bjúgels" át og kók drykkju eins og í gamla daga. Við stóra fjölskyldan í Hraunbænum áttum nefnilega skemmtilega hefð er ungamamman var lítill ungi sjálf. Fyrir helgi var alltaf keyptur einn pakki af Bugles og líters kók í glerflösku (hver man ekki eftir þeim!). Síðan var öllu réttlátlega skipt niður í fimm skálar, brúnar skálar meira að segja sem enn eru notaðar undir ís á jólunum, og svo var líters kók skipt niður í fimm glös.. ALGJÖRLEGA réttlátlega. Glösunum var meira að segja raðað saman svo það augljóst að hvert glas var með sömu millilítrana í því! Haldiði að það sé :o)
En svona skemmtilegar minningar gera það að verkum að manni yljar um hjartarætur er bruðnar eru Bugles kornstangir í Ameríku 25 árum seinna. Hver einasti biti af Buglesinu í kvöld ýtti af stað minningum um gamla daga, liðna daga sem maður fær ekki aftur. En minningin stendur alltaf fyrir sínu í hjarta mans og huga.
Læt þetta duga í bili.. verð að halda áfram að læra meðan ég get.
Kveðja frá VA Beach,
Sigurborg aka. ungamamman!
Fyrir 2 árum


1 skilaboð:
Skemmtileg saga.
Ég fann einmitt bugles á Blockbuster um daginn og tók 2 poka með mér heim og borðaði þá með bestu lyst (þeir voru ekki stórir) og svipað og hjá þér þá datt ég aftur til fortíðar.
Skrifa ummæli