Okay... svo við litla fjölskyldan í VABeach erum búin að komast að því að við megum ekki skilja þurrkarann eftir opinn ef að hrein föt eru inn í honum. Ef það gerist fer kisi upp í þurrkarann og PISSAR í hreinu fötin okkar! Ekki beint það sem maður vill er maður er ný búin að þvo þvottinn! Veit ekki alveg hvað hann Antonio Banderas sér við ný þurrkaðan þvott. Eina sem mér dettur í hug er góð lykt og ylur sem kemur af honum... hver veit.
Ég sit hérna ein í sófanum og er að horfa á The Biggest loser. Mig langar ótrúlega mikið að vera þáttakandi í þeim þætti. Ætlaði að senda inn umsókn en fattaði þá að ég þyrfti að fresta síðustu önninni minni í skólanum og ég er ekki alveg tilbúin í það... þannig að ég frestaði umsókn minni um sinn!
Eiginmaðurinn er sofnaður, sofnaði á gólfinu hjá prinsessunni er hann var að láta hana fara að sofa. Núna er litli karl að rummska þannig að ég þarf að hlaupa upp með pela handa honum fyrir nóttina. Vona að þið hafið átt góða nótt öll sömul og góðan morgundag einnig.
kv,
Sigurborg
Fyrir 2 árum


2 skilaboð:
hallo
Elsku fjölskylda það er ekki gott að kisi pissií þurrkarann skamm Antonio ekki gera aftur enn annars gaman að sjá allar nýju myndirnar hvað börnin stækka ástarkveðjur afi og amma
Skrifa ummæli