og loksins dröslast ég til að skrifa eitthvað hérna inn og öpdeita ykkur um líf okkar. Eins og allir vita þá var ég í prófum síðast er ég skrifaði. Þau gengu bara vel og ég fékk tvö B, eitt B-, eitt A- og tvö A... ekki slæmt það. Ég hélt að ég gæti síðan farið að slappa af og gert ekki neitt eftir prófin en nei.. ekki svo auðvelt. Lífið hefur sinn vanagang fyrir jólahátíðirnar og endalaust búðarráp og innkaup fylltu upp daga mína fram að jólum. En núna eru jólin blessuð búin og við tekur afslöppun þar til skólinn heldur áfram í Janúar, mín loka önn.
Börnin blessuð áttu yndisleg pakkajól. Þau fengu margar góðar gjafir þessi jól og fékk ég svona nasaþefinn af því hvernig næstu ár verða. Þetta eru semsagt okkar fyrstu jól saman sem fjölskylda síðan ég flutti hingað út. En já svo ég tali nú aftur um gjafirnar þá fékk hún Penelope mín smá af fötum og MIKIÐ af dóti, þá einna helst prinsessudóti. Hún er öll í prinsessum núna síðan hún horfði á Cindarella í fyrsta skipti um daginn. Eftir það talar hún ekki um annað en Princess og þykist vera princessa. Hún fékk prinsessu tesett, prinsessu barbídúkku, prinsessu náttkjól og skó, síðan fékk hún fullt af Curious George dóti líka því hann er líka í uppáhaldi. Einnig fékk hún Little people Animal farm house, Leapfrog my first computer og leiki fyrir það, krítartöflu á standi úr IKEA, og fleira. Alexander fékk sit and stand sing along station from Fisher price, FÖT því litli karlinn minn á voða lítið sem passar honum þar sem hann hefur rokið upp síðasta mánuð og er kominn í 12-18 mánaða föt enda næstum 10kg að þyngd guttinn. Hann fékk líka viðarleikföng og bíl og eitthvað meir sem ég man ekki eins og er.
Mamman fékk síðan nýjan giftingarhring frá bóndanum enda hafði sá gamli týnst fyrir nokkur. Ég fékk líka fondu sett og tetris leik fyrir xBox360. Frá tengdó og tendapabba fékk ég $100 gjafakort sem ég á að nota í dekur og ætlar mín í klippingu og litun um helgina vonandi. Síðan fengum við sameiginlega stóran hægsuðupott (crockpot) frá mömmu og pabba og stórt George Froman grill. Frá Möggu og familí fengum við æðislegan George Jensen kertastjaka og frá Jóni og familí fengum við æðislegt eldfast fat með loki og standi. Karlinn fékk síðan frá mér einnig nýjan giftingarhring, The Simpsons movie frá börnunum og statíf fyrir iPod í bílinn sem einnig gerir það mögulegt fyrir hann að spila iPodinn í gegnum útvarpið í bílnum þráðlaust!
Já þetta voru okkar jól.. yndisleg hreint þótt heimþrá hafi gert vart um sig er ég heyrði kirkjuklukkunum slá inn jólunum á RÚV á aðfangadag. Það var soldið erfitt en eins og Jason minnti mig á erum við núna að skapa okkar eigin hefðir sem fjölskylda :o)
Já þetta er það helsta sem hefur verið að gerast í okkar litla lífi. Þið getið skoðað nýjar myndir með því að smella á linkinn á myndaalbúmið mitt hér til hliðar.
Ég vona að þið hafið átt yndisleg jól elsku vinir nær sem fær.
Knús,
Sigurborg
Fyrir 2 árum


5 skilaboð:
hæ
Elsku Sigurborg og fjølskylda gledileg jol og tokkum fyrir okkur mykid er gaman ad sja allar myndirnar fra ykkur vid høfum tad fint herna i Svitjod astarkvedjur til ykkat tinn pabbi og mamma
Hæ
Til hamingju með árangurinn í prófunum. Þegar þetta er skrifað 12,02 30/12 er alveg brjáluð rigning og búið að vera í alla nótt. Það lítur ekki alltof vel út með veðurspána fyrir gamlárskvöld en við sjáum til En sem sagt eins og þeir segja á Englandi "its raining cats and dogs". Kveðja til allra frá blautu Íslandi
Fjölskyldan Álakvísl 45
Gleðilegt ár kæra Sigurborg og takk fyrir kynnin á árinu. Hlakka til að lesa meira um þig og þína. Svanfríður
hæ hæ núna eru jólin löngu liðin og við viljum endilega fá nýjar fréttir:)svo ég tali ekki um myndir af litlu grísunum;)
Erum farin að telja niður þar til við hittum ykkur:)
Kveðja Helena
Skrifa ummæli