.. ég er ÞEKKT fyrir að rokka á milli blogspot og wordpress en alltaf kem ég hingað yfir aftur. Maður er eitthvað svo vanafastur í ellinni, haha. Allavegna þá er þetta nýja síðan... nýtt útlit og vonandi fleiri innlit.
Við sitjum hérna litla fjölskyldan í hádegin og gæðum okkur á heimatilbúnum meatball subs! Mér finnst ekkert betra en steiktar kjötbollur í spagettísósu settar svo á langlokubrauð með osti.. mmmm.... gæti etið heilan helling af þessu en læt mér nægja einn slíkan þar sem maður er nú að reyna að losna við þessi blessuð aukakíló sem maður fékk á sig við að eiga tvö börn á þremur árum! Ekki beint skemmtilegt hvað þetta gerir líkamanum því ég var ekki svo heppin að þetta hafir bara "runni" af mér með brjóstagjöf. Samt var það alveg þess virði get ég sagt ykkur. Á hin tvö yndælustu börn í heimi, jafnvel þótt þau fari ótrúlega í mann stundum eru þau samt þau yndælustustu sem til eru. Litli herrann minn hann Alexander Þór þykir kjötbollur það allra allar besta í heimi sem hann fær. Hann getur etið á við fullorðinn mann þegar kemur að þeim. Hann er mjög svo matvandur samt og borðar ekkert nema kjúklinganagga, kjötbollur, pulsur (er samt að fá leið á þeim núna held ég) og jógúrt. Þetta lifir litla greyjið mitt á alla daga allann daginn, haha... bara yndislegur. Hann borðar samt vel af því sem hann borðar enda má það sjá á honum. Hann notar skó númer 25 (eða 8 í USA stærð), hann er 89 cm og 13.5kg og hann er einungis 18 mánaða guttinn. Systir hans sem er að verða 3ja ára eftir mánuð er hins vegar 92cm (að mig minnir) og 15kg og notar skó nr. 8.5 í USA stærð! Er farin að halda að litli guttinn ætli að verða eitthver risi en veit ekki alveg hvaðan hann mun fá það, lol.
Jæja.. við erum að fara núna í Costco að versla og því segi ég adios amigos and see you later, gater.
Sigurborg
Fyrir 2 árum


2 skilaboð:
Frúin bara alltaf að flytja ;)
Það er svolítið erfitt að lesa hvítu stafina á svarta grunninum..rennur allt í eitt...kanski er þetta bara ég..ég er nú svo spes;)
já ég er að reyna að laga þetta :o)
Skrifa ummæli