7. janúar 2009

Leti, Leti, Leti!

Já það er bara leti í manni þessa dagana, alla vegna leti á að skrifa eitthvað blogg að viti. Hausinn er búinn að vera tómur enda hef ég þurft að snúast í miklu í sambandi við að fjármagna grad skólann minn. Ég hafði heyrt útundan mér að Norfolk State væru slæmir í sambandi við financial aid en aldrei lenti ég í neinum stökustu vandræðum með þá. Ekki nema einu sinni þegar ég þrufit, kasólett að arka með Penelope inn í skóla til að ná í tékkann minn og það virtist taka forever að komast á skrifstofuna því langt þurfti þessi ólétta með 15 mánaða gamalt barn að ganga! En já, Liberty University slær öllu út og ég er ekki ENN búin að fá greitt út mína financial aid fyrir haustönnina, sem ég er löngu búin með, meira að segja búin að fá allar einkunni fyrir fögin mín og ekkert enn farið að láta sjá sig á reikningum mínum!! Er hreinlega að gefast upp en ætla ekki að gefa þeim það eftir því ég þarf þennan pening til að borga það sem ég fékk lánað á Íslandi því það er hagstæðara lánið hérna. Ég er núna búin í 2 daga að sitja við símann og bíða eftir að eitthver svari í meira en 40 mín. þegar ég gefst upp. Á morgun er Jason hins vegar heima, eða kemur heim snemma þannig að ég ætla að loka mig inn í herbergi og þó ég þurfi að eyða öllum deginum í símanum að bíða mun ég gera svo!!!


Kannski er samt ekki rétt að segja leti því dugleg hefur húsmóðirn verið að stunda líkamsræktina bæði þessa og síðustu viku. Hef verið að fara næstum á hverjum degi, held ég hafi sleppt 2 dögum í síðustu viku og einum í þessarri enn sem komið er. Ofan á venjulega æfingarprógrammið mitt þá er ég líka að fara eftir prógrammi sem heitir couch to 5k, eða úr sófanum í 5 km (3.1 míla) hlaup. Þetta er 10 vikna prógramm sem á að byggja mann upp í að hlaupa 5km hlaup og ætlum við hjónin að skrá okkur í 5k hlaup í endan á apríl og vonandi fæ ég Þóru vinkonu með mér í annað hlaup í maí er ég fer til hennar í heimsókn. Í dag hljóp/labbaði ég t.d.  2.75 mílur (4.5km) á 35 mín. Frekar ánægð með það. Takmarkið er að hlaupa þessa 5k á undir 30 mín. Ég er núna á viku 2 af 10 á prógramminu. Ég hef núna lagt af 11.5kg síðan í júlí á síðasta ári og takmarkið er að léttast um annað eins á þessu ári og aðeins meir en það (ekki mikið samt...kannski svona 15kg í viðbót og þá væri ég ánægð).

Jæja... litlu börnin mín grenja og öskra á mömmu sína þannig að ég held það sé lag að fara að fara frá tölvunni.

knús,
Sigurborg

2 skilaboð:

Ameríkufari segir fréttir sagði...

Dugleg ertu Sigurborg!! Gangi þér áfram vel. Og láttu ekki skrifræðið vinna..ég sendi þér strauma. Þoli ekki svona,uss! Hafðu það gott:)

Helga sagði...

Rosalega ertu dugleg í þessari líkamsrækt!!! Ég er svo löt þessa dagana en ég ætla að byrja aftur....damnit ég verð að byrja aftur!!! Gangi þér vel með skóla lánin ég veit það er allgjört pain in the ass.