... af hverju mér fannst svona leiðinlegt að prjóna á hringprjón!!! Mér finnst mér ekkert miða áfram þótt ég prjóni og prjóni og prjóni. Reyndar er ég með 160 lykkjur á prjónunum en sama! Ég man alveg þegar ég prjónaði lopapeysu á mig sjálfa er ég var 14 ára gömul og mér fannst það bara EKKERT erfitt get ég sagt ykkur. Fékk jú smá hjálp frá henni móður minni með hana, sérstaklega er kom að ermaopinu en það var það eina. Ég man enn þann dag í dag hvað ég var stolt er ég var búin en því miður, þá prjónaði ég hana of stóra og hún náði mér alveg niður á hné eftir að búið var að þvo hana. Hún var samt flott, bleik á lit með bláu, hvítu og gráu mynstri... svona soldið lík kjólnum sem ég er að prjóna á Penný. En það sem mér finnst samt gaman að gera þetta og skil ég ekki af hverju ég gaf upp prjónaskap hérna í denn. Það hafði jú eitthvað að gera með lopapeysuna sem ég prjónaði held ég. Ef ég man rétt þá varð ég víst svo vonsvikin að hún varð of stór að ég barasta gaf upp að prjóna nokkuð eftir það.
Fyrir 2 árum


5 skilaboð:
Hæ
Var að senda þér prjónamynd á e-mail frá Helenu.
Kv.
JGR
En thu dugleg skvisa. Eg vel thad ad hekla fram yfir ad prjona any day.
kv
Huld
Rosalega ertu dugleg!! Ég er búin að vera að prjóna líka, ég gerði húfur á öll börnin sem ég er að passa í jóla gjöf. Ég er núna að prjóna húfur sem ég ætla að reyna að selja á craigslist. We will see how that goes :0) Mér finnst líka hundleiðinlegt að prjóna á hring prjón, seems to take forever. Gangi þér vel, mér hlakkar til að sjá myndir.
Helga
Hae, thad vaeri gaman ad sja myndir af prjonada kjolnum. Mamma min var alltaf svona dugleg ad prjona a okkur systurnar thegar vid vorum litlar. Thad eru til margar saetar myndir af okkur i prjonudu, hekludu eda saumudum kjolum og peysum. :)
Daist ad ther stelpa ad vera svona dugleg. :)
kv
Huld
Mér þykir þú dugleg. Ég lýg því ekki en ég kann alls ekki að prjóna þannig að konur sem prjóna fá mörg prik hjá mér. Ég hlakka til að sjá afrakstur þinn. Hafðu það gott.
Skrifa ummæli