14. janúar 2009

prjóna prjóna prjóna!!

Já ég er dottin í prjónana, get varla látið þá frá mér þessa stundina og hef svo gaman að þessu. Ég byrjaði á því að fá hugmynd um daginn að prjóna handa Penný litlu "lopa" kjól, bara ekki úr lopa því let´s face it, það er allt of heitt hérna í Kaliforníu fyrir lopa, haha. Ég fór út í garnabúð og keypti æðislega sætt bleikt garn, því litla skvísna er svo mikil prinsessa og bleikur er uppáhalds liturinn hennar. Kjóllinn verður dökk grár, beis og bleikur á lit með stuttum ermum og lopapeysumynstri að ofan, svona eins og ég held að annað hvort barn eigi heima, lol. Sem sagt grunnurinn er bleikur og mynstrið verður grátt og hvítt.... ferlega flott saman. Og ef þetta heppnast vel þá ætla ég að gera svona kjóla á skvísurnar hennar Þóru í afmælisgjöf. Ég var nú frekar fúl, því eins og svo oft áður þegar mér dettur eitthvað í hug þá bara VERÐ ég að byrja strax á því og var ekki með uppskrift af kjólnum. Ég byrjaði því að prjóna en prjónaði á einfalda prjóna, ekki hringprjón því uppskrift sem ég fann á netinu af venjulegum kjól sagði að maður ætti að prjóna fram og bak stykkið í sitt hvoru lagi. En að mati mágkonu minnar hennar Helenu þá rakti ég það allt upp, fór og keypti mér hringprjón og byrjaði í gær. Það er jú miklu auðveldara að prjóna á hringprjón og fallegra, verða engir saumar. Ég ætla að reyna að klára allavegna upp að mynstri fyrir helgi og verð þá vonandi búin að fá uppskriftina frá henni Helenu.


Well that´s it í dag... bið bara kærlega að heilsa og vona að þið hafið það öll sem best!

Knús,
Sigurborg

1 skilaboð:

Unknown sagði...

jæja best að prófa einu sinni enn...
Vildi bara láta þig vita að uppskriftin kemur til þín á morgun,Jón var í fríi í dag ;)

Gangi þér vel með prjónana

Kveðja Helena