6. júní 2009

Íslandsferðin so far...

síðan ég kom heim til Íslands þá hef ég borðað ALLT of mikið....

t.d. er ég búin á síðastliðnum 6 dögum búin að:

  • stúta heilu stóru Tobleron
  • borða langloku með skinku osti káli papriku og pítusósu
  • Skinkubát úr Skalla Árbæ (bara það BESTA í heimi)
  • borða 3 pulsur með öllu nema remolaði
  • fá mér hamborgara og franskar með hamborgarasósu og kokteilsósu
  • fá mér steiktan fisk í raspi með kokteilsósu, soðnum kartöflum og hrásalati
  • borða bland í poka
  • fá mér prins póló
  • rúnstykki með paprikosti
  • heilhveitihorn með osti
  • eta endalaust af skyri og vanillu abt mjólk með múslí
  • fá mér appelsín og mix!
  • drekka endalaust mikið af Egils Kristal og auðvitað rúsínan í pylsuendanum..... DREKKA TONN AF VATNI BEINT ÚR KRANANUM!!!!

Já maður er aldeilis búinn að liggja í því og í hvert skipti sem ég fer út í búð eða út í sjoppu þá sé ég alltaf eitthvað nýtt sem ég hef ekki fengið í "svo langan tíma" og ég bara "VERÐ" að fá það núna því það er ekki eins og ég hafi tvo heila mánuði til að smakka allt saman (ehhemmm.... ). Maður er bara stundum svolítið vitlaus og mér er búið að líða alla vikuna eins og ég sé bara að fara heim á morgun og því bara VERÐI ég að fá þetta allt núna. Ég verð samt að fara að hætta þessu eða ég mun eiga á hættunni að öll fötin sem ég er með mér verði of lítil eftir nokkrar vikur! Ég verð bara að vera extra dugleg í ræktinni í næstu viku og allar þær vikur þar á eftir þangað til ég fer aftur heim.

Læt þetta gott í bili og vonandi mun ég ekki borða svona mikið á morgun.

knús,
Sigurborgin feitabolla

0 skilaboð: