... kúkað í koppinn og núna gerði hann það alveg ALEINN!! Ég bara vissi ekki fyrr en hann sat við hlið mér á koppnum og fann þessa svaka lykt að hann var að kúka og gerði þetta alveg sjálfur. Penný var alveg eins, hún byrjaði á því að kúka í kopp en átti erfiðara með að læra að halda í sér til að pissa í kopp/klósett. Alex virðist ætla að vera alveg eins! Kannski tekst þetta bara að taka bleyjuna af honum meðan við erum hérna á klakanum.
Annars fórum við Penný að sjá Kardemommubæinn í Þjóðleikhúsinu í gær. Ég var fjögra eða fimm þegar ég sá Kardemommubæinn í leikhúsinu fyrst og man enn eftir því. Hún hafði svo gaman af því og sat stjörf yfir sumum atriðunum. Við höfum oft hlustað á Kardemommubæinn í tölvunni og held ég hún hafi þekkt nokkur lögin, eða kannast við þau.
Jæja... stúlkan er grenjandi hér mér við hlið út af frekju og verð ég að fara að sinna því.
knús,
sigurborgin


0 skilaboð:
Skrifa ummæli