Klukkan 10.30 í morgun datt litla skvísan mín ÚT um stofugluggann. Það er svona flugnanet fyrir glugganum, og þar sem það er búið að vera svo gott gluggaveður höfum við verið með alla glugga opna í nokkra daga til að lofta út og nota EKKI loftkælinguna. En það vildi ekki betur til en á meðan mamman sat í sófanum með fartölvuna í fanginu að skrifa litla ritgerð, klifraði litla skvísan upp í glugga með kisu, ýtti of fast á netið og datt niður á gangstéttina! SEM BETUR FER þó var fallið ekki hátt, ekki meira en 50cm eða svo en nóg til að skelfa mömmuna svo mikið að ég he ekki getað hætt að hugsa um "Hvað ef þetta hefði verið glugginn á efri hæðinni... Hvað ef hún hefði verið að príla í glugganum sínum og fallið niður af annarri hæð". Ég get hreinlega ekki hugsað það til enda, hún sem var að príla í glugganum sínum en sem betur fer var hann ekki opinn það mikið og núna, frá og með þessarri stundu eru og verða aldrei aftur gluggarnir á efri hæðinni opnir. Frekar hef ég loftkælinguna á en að hafa gluggana opna, alveg sama hversu notalegt það er að finna goluna leika um herbergin. Það er bara ekki þess virði.
Litla skvísan er í fínu lagi samt, hún er með litla kúlu á enninu og smá skrámu á hnjánum en ég held að litla sálin hennar (og mömmunar) hafi orðið fyrir meira áfalli.
Jæja... best að halda áfram að læra.
kv,
Sigurborg
Fyrir 2 árum


1 skilaboð:
Elsku stúlkan okkar amma og afi skelfast líka um tilhugsunina ef þú hefðir verið á annari hæð en sem betur fer var svo ekki passaðu þig dúllan mín en Sigurborg mín allir krakkar eru að príla og Penelope er eins og öll börn gott að fór vel þakka guði fyrir mykið er gaman að sjá nýju myndirnar af systkynunum þau eru svo falleg ooooooooh okkur fynnst myndbandið alveg dásamlegt af Penelope fannst við vera komin til ykkar ástarkveðjur til ykkar allra þín mútta og pabbi
Skrifa ummæli