já maður fær bara blogganda yfir sig er maður skiptir um stað. Kannski er það bara að viðmótið hérna er auðveldara í notkun en á 123.is eða kannski bara tilhugsunin að þetta sé frítt sem fær mig til að blogga og blogga, lol.
Allavegna þá var ég að hlaða inn myndum í myndaalbúmið okkar á picasa.. þið getið skoðað það með því að klikka á myndina undir Myndir.
Ég á nú að vera að læra eins og er.. er að fara í próf á morgun en fæ mig bara eitthvern vegin ekki til að byrja Þetta er ekki stórt próf en samt þarf maður nú að læra er það ekki. Fer í það núna eftir að ég logga mig hérna af. Annars er litla kellan mín bara vakandi og kl. er orðin hálf níu. Hún tók engan lúr í dag en sofnaði upp í hjónarúminu okkar um kl. hálf sex. Síðan vaknaði hún upp er ég var að svæfa litla gutta kl. hálf átta og hefur verið vakandi síðan :-/ Ætli hún fari nokkuð að sofa fyrr en við förum að sofa!
Jæja.. ætla að fara að læra núna fyrir prófið mitt. Bið að heilsa í bili.
knús og kossar,
Sigurborg
Fyrir 2 árum


1 skilaboð:
Hæ, mig langar að spyrja þig hvaða prógram notaru fyrir watermarking ??? Er að lesa á veraldarvefnum að fólk er að finna myndir af börnunum sínum sem hafa verið teknar af vefnum og notaðar í auglýsingum um allan heim !! Langaði að prófa ! Ég er mjög ánægð á blogger ! Var alltaf á leiðinni á 123.is en svo er bara hægt orðið að gera svo mikið hér !
Gangi þér vel með skólann,börnin og alles*
Rúna
Skrifa ummæli