Alexander Þór varð 6 mánaða núna þann 20. Í dag fórum við í 6 mánaða skoðunina og minn "litli" karl er orðinn 71.5cm (fæddur 49.5), 8,39kg (fæddur 3,005kg) og höfuðmál 46,5cm (fæddur 36cm). Hefur aldeilis stækkað minn litli karl.
Annars lítið annað að frétta. Litla skvísan er að verða svo dugleg að pissa og kúka í kopp! Hún er nú samt enn með bleyju því það er lítill tími að taka á þessu núna eins og er en ég ætla að taka á þessu í desember. Alltaf samt er hún er bleyjulaus heima pissar hún í koppinn sinn, ekkert smá dugleg fyrir að vera ekki orðin 2ja ára!
Kv,
Sigurborg
Fyrir 2 árum


1 skilaboð:
Þeir eru mjög svipaðir í hæð og þyngd þeir pattar.
Ég er þér sammála að ungfrúin er dugleg að pissa í koppinn og ekki eldri en hún er. Keep it up girl.
Skrifa ummæli