13. október 2007

Mikið var að beljan bar!!!

já maður er bara búinn að vera internets laus í næstum viku núna. Erum búin að lenda í þvílíkum vandræðum með internet fyrirtækið þannig að núna erum við að hugsa um að skipta um fyrirtæki og vonast til að allt þetta rugl fari að taka enda.

Já.. það er búið að vera langt síðan síðast.... ekkert merkilegt svo sem gerst í millitíðinni. Lífið heldur bara sinn vanagang. Við fjölskyldan fórum í ferðalag upp til fjalla um síðustu helgi. Vorum svona að vonast til að sjá haustlitina en þar sem það er búið að vera sumarveður hérna þangað til í fyrradag var ekkert um það. Við nutum bara fjallanna í staðin, fannst ég svona vera komin heim fyrir utan öll trén í fjöllunum. Sagði við Jason að hingað vil ég koma í vetur þegar það verður kominn snjór og leyfa Penelope að fara á snjóþotu. Það er víst lítið skíðaþorp þarna þannig að það ætti að vera hægt.

En já eins og ég sagði þá er LOKSINS komið haust hjá okkur, ekki seinna að vænta þar sem það er kominn miður október! Við gátum loksins slökkt á loftkælingunni og opnað gluggana, farið að ganga í gallabuxum aftur og ég held ég geti sett öll sumarföt krakkanna niður í kassa! Reynar voru öll sumarfötin hans Alex orðin ALLT of lítil og litla greyjið mitt leit út eins og asni í of litlum fötum. Ég bara harðneitaði að far að kaupa sumarföt á stráksa um miðjan október! En núna getur hann farið að nota öll sætu fötin sín, þótt hann virðist ekki geta notað þau lengi. Ég er ekki alveg að ná því hvað hann er að stækka fljótt þetta litla skinn. Hann er núna í fötum stærð 6-12 mánaða og þau að heima í stærð 74! Penelope var að nota föt stærð 74 síðasta vor get ég sagt ykkur! Litli strákurinn minn er ekki orðin 6 mánaða og er að nota sömu stærð og Penelope þegar hún var eins árs!!!!!!!!

Jæja.. verð að hraða þetta af því sá umtalaði er að gráta.

knús og kossar,
Sigurborg


ps.. klikkið á myndirnar mínar og njótið nýrra mynda. "Bland í poka... október" og "Ferð til fjalla"

2 skilaboð:

Nafnlaus sagði...

amma og afi segja Elsku fjölskylda yndislegar allar myndirnar og gaman að sjá hvað börnin stækka og eru myklar dullur erum oft að horfa á þær ástar kveðjur til ykkar þín mútta

Nafnlaus sagði...

Hér er ég farin að slökkva á loftkælingunni á nóttini ! Mígandi rigning núna en þetta er uppáhalds árstíminn minn hér. Verður þó sennilega ekki eins kalt hér og hjá þér ! Flottar myndir !

Kveðja frá FL !