17. október 2008

Friday evening...

.. og kallinn spilar UNO í xBox og eiginkonan situr með fartölvuna í fanginu upp í sófa að sörfa um á netinu... haldiði að það sé hjónalífið hjá okkur, lol. Annars er bara allt svona sæmilegt að frétta. Penelope litla er búin að vera lasin alla vikuna með hita og vesen sem loksins náði hámarki sínu í gærkveldi. Veit ekki nákvæmlega hversu háan hita því við áttum ekki hitamæli (ekki fyrr en í dag) en hún var bullandi heit í gærkveldi og kósveitt þessi elska. Hún sofnaði meira að segja í fangi mínu í gær upp úr hálf fimm, frekar skrítið því eina stundina var hún að tala við mig og svo bara eins og hendi væri veifað var hún sofnuð. En eitthvað hefur líkami hennar verið að búa hana undir því við fórum með hana upp í rúm þótt klukkan væri ekki nema hálf fimm og um sjö leitið rumskaði hún aðeins við sér í nokkrar sekúndur og var þá eins og hún væri að koma úr sturtu, svo sveitt og heit var skvísan. Henni leið aðeins betur í dag en ekki svo mikið en var allavegna ekki með hita. Núna er hún bara með stíflað nef og ráma rödd. Svo er ég hrædd um að litli kall sé að verða veikur líka, sem mér finnst skrítið því hann er á öðrum skammti af amoxisilin en hann er orðinn svo hás og með slæman hósta en sem betur fer ekkert í nefinu. Ég þarf nú að fara að panta tíma fyrir hann hjá ofnæmislækninum og láta gera ofnæmsitékkin á honum svo við vitum hvort nefstíflan sé ofnæmi eða ekki. Ef ekki verður hann sendur í röntgen til að ath. nefkyrtlana. Allt vil ég nú gera til að litli kall losni við stíflaða nefið sitt en hann er búin að vera með hor niður á brók síðan hann fæddist! Ég mun alltaf kenna myglunni um sem var í húsinu sem við bjuggum í meðan ég var ólétt af honum en hver veit. Ofnæmislyfin sem hann er á núna virðast virka, eða kannski get ég ekki alveg sagt það þar sem hann er bæði á amoxisilin og ofnæmislyfinu þannig að það kemur í ljós er hann hættir á amoxisilin hvort það sé að virka, lol.

En já, svo voru tveir fyrstu kúrsarnir mínir í masternáminu að enda og fékk ég A í báðum. Fékk 97 af 100 fyrir ritgerðina mína í öðru faginu og 100% fyrir vettvangsnámið í hinu faginu. Samtals öll próf og öll verkefni sem ég gerði í báðum fögum gaf mér A sem ég er geggjað ánægð með. Síðan er þriðja fagið að byrja á mánudaginn, sem minnir mig að ég á enn eftir að panta bókina :-O Jæja, geri það á morgun. er ekkert smá ánægð að masterinn gangi svona vel allavegna enn sem komið er. Ég er samt rosalega að draga það til baka að einbeita mér að sérkennslu og er mikið að spá í master í grunnskólakennslu í staðin en hver veit? Það er auðveldara að fá starf sem sérkennari en það sem ég hef heyrt, allavegna hérna í San Diego er að það er erfiðara að halda vinnu sem sérkennari því það sé svo mikið rót á sérkennurum. Ég allavegna hef fram til desembers að hugsa mig um.

Jæja, klukkan orðin margt og börnin löngu sofnuð og spurning hvort gamla settið ætti ekki að drulla sér í háttinn líka... er allavegna drullu þreytt því mín var vöknuð kl. 5.30 í morgun til að keyra eiginmaninnum í vinnuna.

Knús,
sigurborgin

2 skilaboð:

Dagbok Huldar sagði...

Hae Sigurborg.
Takk fyrir ad kvitta. Alltaf sami dugnadur i ther i skolanum.
Vonandi batna bornunum bradlega.
kv
Huld

Unknown sagði...


Til hamingju með A-in tvö. Ekki slæmur árangur það.

Kv.
JGR