19. október 2008

Sunnudagur....

... er í dag og við fjölskyldan í miklu leti stuði. Allavegna við hjónin, veit svo sem ekki með krakkana hvort þau séu í letistuði, lol. Litla skvísan er nú enn eitthvað slöpp með lekandi hor og augun full af vatni en engan hita sem betur fer. Litli kall er auðvitað alltaf í miklu stuði, á mjög erfitt með að hanga inni allan daginn og vill vera mikið úti að leika sér, sem er barasta fínt. Verður miklu betra þegar ungarnir eldast aðeins og geta farið ein út að leika sér því eins og er eru þau annað hvort föst við mömmu sína eða föst að fara út í bakgarð sem er nú ekkert til að hrópa húrra fyrir. Mig dreymir um að eignast lítið raðhús, kanski svona 1500 square feet en RISA garð! Það er nú ekki mikið um þannig hús hérna í San Diego því þétt er byggt og lítið um stóra garða. Ég er nú samt alveg búin að sætta mig við að vera bara hérna hjá hernum þessi þrjú ár og vonandi, allavegna er planið að eftir þennan sjótúr að komast upp til WA og þar myndum við þá vera í 6 ár og kaupa okkur hús! Þar fengjum við hús með stórum garði, betri skólar og veður sem ég fíla.

En já, sunnudagur í dag og ekki mikið um að vera. Þriðja fagið hjá Liberty University byrjar á morgun online þannig að næstu 8 vikurnar verð ég í tveimur fögum, s.s. einu í NSU og einu hjá Liberty! Það verður munur að vera bara í tveimur frekar en þremur. Master námið er miklu meira krefjandi en BA námið og miklu meira að læra, sérstaklega þar sem hvert fag er bara 8 vikur.

Jæja, best að fara að huga að kvöldmat. Ætlaði að hafa læri en kl. orðin of margt þannig að það fór inn í frysti fyrir næstu viku. Keypti úrbeinað lamba læri í einni health food store hérna á $18 sem er ekki svo slæmt. En í kvöldmatinn verður hvítlauks kjúlkinga pasta og hvítlauksbrauð :o)

kv,
sigurborgin

1 skilaboð:

Unknown sagði...

var búin að skrifa helling við hina færsluna en ...veit ekki hvar það endaði...en allavega vona ég að krakkanir fari að losna við þetta endalausa hor..
og mikið rosalega ert að standa þig vel í skólanum:)

knús og kossar á liðið

KV Helena