22. október 2008

við hjónakornin



Loksins mynd af okkur saman. Ég er alltaf fyrir aftan myndavélina því ég leyfi varla nokkrum manni að snerta tólið mitt sem þýðir að lítið verður af myndum af mér :o) Þessi var tekin með síma ektamannsins míns... bara nokkuð góð af okkur verð ég að segja!

Já, var að koma úr ræktinni... er svo heppin að hafa klúb hús hérna á svæðinu sem ég kemst frítt í rætkina. Er núna að prufa æfingarprógram sem heitir body for life og byggist upp á þolþjálfun einungis 3x í viku og svo lyftingar 3x í viku. Þá daga sem maður lyftir gerir maður ekkert nema það, engin þolþjálfun, ekkert hlaup og svo framvegis. Finnst það svolítið skrítið að fara í ræktina og bara lyfta lóðum en það venst vonandi. Finn allavegna að vöðvarnir eru að DREPAST sem er ekkert nema gott! Er núna búin að grennast um tæp 8kg síðan í byrjun ágúst sem er ekki svo slæmt! Verð vonandi orðin voða grönn og sæt þegar maður fer heim næsta sumar ;o)

Annars bara lítið að frétta. Krakkarnir við góða heilsu núna sem er ferlegur plús. Var alveg komin með ógeð af því að hafa veika gríslinga því þau eru svo lítil í sér er þau eru veik og það er svo sárt að horfa upp á þau þannig og geta lítið gert í málunum. Eiginmaðurinn kom heim úr vinunni snemma í dag því við þurfum að fara niður á base og endurnýja skírteinið mitt sem rann út í gær! Fékk ekki tíma til að endurnýja það fyrr en í dag því hérna er ekkert sem heitir að labba bara inn og fá endurnýjun eins og í Norfolk. Hér þarf sko að panta tíma og alles.... allt svo öðruvísi.

Jæja, best að fara í sturtu á meðan krakkarnir sofa svo maður fái nú að gera það í friði, lol

kv,
sigurborgin

2 skilaboð:

Dagbok Huldar sagði...

Saet hjon. :)
Thu verdur ordin skinny minny in no time. :)
kv
Huld

Unknown sagði...

Hæ
Flott mynd!

Kv.
JGR