8. desember 2008

Fjölskyldumyndir og veikindi.

Laugardaginn síðasta þá skelltum við okkur niður á strönd til að taka nokkrar fjölskyldur myndir. Við eigum enga mynd af den hele famili saman svo niður á strönd örkuðum við með þrífót í hendi og litum út eins og hálfvitar með myndavél á þrífót og að nota timerinn á myndavélinni til að taka myndir. Nokkrir gangandi vegfarendur spurðu hvort við vildum hjálp, það er taka myndirnar fyrir okkur, en eins og flestir vita þá er ég svolítið sérstök er kemur að myndatökum og sérstaklega að láta aðra snerta myndavélina mína, haha. Ég þakkaði boðið góðfúslega með "No thank you, but it is really sweet you asked... I´m just weird when it comes to my camera" og brosti mínu blíðasta. Það er alveg rosalega fallegt hérna á ströndunum í Kaliforníu þó þær séu nú ekki eins hvítar og strendurnar í Virginíu. Landslagið er samt allt annað og bjargir og hellar einkanna mikið landslagið. Allavegna, þá komu myndirnar bara nokkuð vel út verð ég nú að segja og meira að segja gat ég tekið reglulega fína mynd af bara okkur hjónunum... hérna má sjá myndirnar....


Annað sem er í fréttum er að litla fólkið mitt er búið að vera lasið síðan í gær. Alex var eitthvað slappur í allan gærdag, fór meira að segja einn upp í rúm og sofnaði í hádeginu í gær. Síðan var litli kall með 38.5 stiga hita í allan gærdag og endaði með 40.1 stigs hita í gærkveldi sem mér leist nú ekkert allt of vel á. Hann er ekkert veikur samt, bara þessi hiti. Ég gaf honum hitastillandi og áður en ég fór að sofa í gærkveldi var hitinn kominn niður í 37.7 gráður. Í morgun er hann síðan hitalaus en þá vaknaði litla skvísan upp lasin. Jason varð var við hana gráta er hann var að gera sig tilbúinn fyrir vinnudaginn og fer inn til hennar. Þar liggur hún í rúminu og kúgast og hann rétt nær að skella henni inn í baðherbergi áður en hún kastar upp yfir allt klósettið. Hún sofnaði samt aftur (þetta var um 5 leitið) en vaknaði hálftíma síðar og var þá búin að kasta upp yfir rúmið sitt. Hún er búin að kasta upp einu sinni enn eftir það en ekkert núna í um eina og hálfa klst. Vonum að þetta sé nú barasta búið.

Jæja, best að fara að gefa krakkalingunum mínum eitthvað að borða..........

kv,
Sigurborg

2 skilaboð:

Nafnlaus sagði...


Flottar myndir, ekki að spyrja að því!
Ég las í fréttunum um orrustuþotu sem hrapaði til jarðar í San Diego nálægt einhverju military base. Var þetta einhversstaðar rétt hjá ykkur?

Kv
Jhonny Gee from Niceland
(JGR)

Nafnlaus sagði...

Takk fyrir goda kvedju. GUDDDDDDDDD hvad eg er fegin ad vera buin med skolann...lol... :)Finar myndir Sigurborg. Vid fjolskyldan erum einmitt ad fara i myndatoku hja Sigrunu i dag,utskriftarmyndir, jolamyndir og fjolskyldumyndir. Eg er svo spennt ad fa goda fjolskyldumynd af okkur en thad eru komin 2 ar sidan vid gerdum thad sidast.
kv
Huld