Já hann stekkjastaur gamli lagði leið sína alla leið frá Íslandi hingað til Kaliforníu í nótt og færði krökkunum mínum Latabæ límmiða í skóinn. Þau voru yfir sig ánægð með þá gjöf frá gamla manninum og er mín litla skvísa búin að taka alla Sollu stirðu límmiðana og líma þá á blað og lita í kringum þá. Litli karl er ekki enn búinn að snerta sína.
Sem íslendingi búandi í útlöndum og eigandi börn sem eru hálf íslensk finnst mér það mín skilda að kenna þeim þá siði sem tilheyra minni menningu og sem ég upplifði sem lítið barn. Við erum bæði með skóinn út í glugga og þau eiga súkkulaði dagatal sem er þvílíkt sport á þessum bæ á hverjum morgni. Eins og ég segi þá finnst mér þetta vera mín skilda meðan þau eru lítil, alveg eins og að kenna þeim og tala við þau bara íslensku. Svo þegar þau verða eldri og fara að hafa meira vit mega þau síðan velja hvort við höldum í þessar hefðir í sambandi við jólin eða þá hvort þau vilji tala íslenskuna eður ei. Ég ætla samt ekki að fá það á mig þegar þau verða fullorðin að þeim hafi fundist synd að ég hafi aldrei kennt þeim íslensku og vera með samviskubit yfir því. Hver segir að þau eiga eftir að búa í Ameríku allt sitt líf? Það getur meira en vel verið að þegar þau verði eldir að þeim langi að flytja til Íslands og eiga heima þar. Þá vil ég að þau hafi alla vegna grunninn í íslenskunni og geti gert sig skiljanleg þar. Mér finnst þetta bara vera réttur þeirra sem hálf Íslendingar og hvaða rétt hef ég að taka þetta af þeim! Plús, þetta gerir ekkert nema gott fyrir þau og litla heilabúið þeirra sem stækkar og stækkar með hverju orðinu sem þau læra og heyra. Ég geri mér alveg fulla grein fyrir því að íslenskan per say hefur ekkert að segja hérna í USA en það er bara svo að USA er ekki allur heimurinn. T.d. að kunna íslensku gerir manni gott og auðveldar að læra önnur norðurlandatungumál. Plús, þá finn ég það alveg að ég missi síður niður minn íslenska orðaforða að tala ekkert nema íslensku ivð mín börn.
Finnst samt alveg synd, og hreinlega skil það ekki en ég tala EKKERT nema íslensku við þessi börn allan daginn en samt tala þau í 90% tilfella ensku er þau tala. Þau hlusta jú á enskt sjónvarpsefni og hlusta auðvitað á mig og pabba þeirra tala ensku saman. Samt skilja þau íslenskuna alveg 100% og ég veit að einn góðan veðurdaginn kemur þetta allt hjá þeim. Þangað til held ég áfram að vera sterk og kenni þeim mitt móðurmál.. ÍSLENSKU!
kv,
stoltamamman


3 skilaboð:
Heyr heyr ;)Þú verður nú ekki í vandræðum með að kenna þeim islendskuna kennarinn sjálfur :)
Kveðja úr snjónum á Islandi ;)
Alveg hárrétt hjá þér-gott hjá þér og haltu áfram á þinni braut!
Segji AMEN við þessu öllu ! Sumarið 2007 vorum við 2 mán á Íslandi og eftir 2-3 vikur var Kristofer þá 5 1/2 árs farin að tala þokkalega ísl. Þetta er þarna en þú þarft að vera í kúltúrnum til að ná góðum tökum á því. Sama hér ég tala á ísl. við þau en fæ flest á ensku til baka !
Jólakveðjur,
Rúna
Skrifa ummæli