.... sem er samt búin að vera í loftinu í næstum heilt ár en móðurbróðir hans mansins míns lést í kvöld á heimili sínu eftir langvarandi baráttu við krabbamein í heila, lungum og eitlum. Eins og ég sagði þá er hann búinn að vera að berjast við þetta í heilt ár, var fyrst sagt að hann ætti nokkra mánuði eftir ólifað en fór í lyfjameðferð og geisla og hálfu ári seinna var hann enn á lífi. Við litum t.d. við hjá honum er við fórum til Rhode Islands í sumar og þó hann hafi verið svolítið hrörlegur leit hann alls ekkert svo illa út. Hann hefur alla tíð verið rosalega góður við okkur og mér alltaf fundist hann mikið halda upp á Jason. Hann leit á Penelope og Alex sem sín eigin barnabörn að okkur fannst og var ekkert nema yndislegur við okkur í hvert skipti sem við komum til Rhode Islands. Fyrir viku síðan fékk Jason símhringingu frá syni hans því hann hafði beðið son sinn að spurja Jason hvort hann myndi vera líkberi við jarðaför sína. Jason sagði mér eftir á að þetta hafi verið eitt það furðulegasta símtal sem hann nokkurn tíman hafi átt en eitthvað hefur hann haft það á tilfinningunni að hann ætti ekki mikið eftir. Ég er miður mín fyrir hönd sonar hans og mömmu Jason´s og tók ég ekki annað í mál en við öll færum og yrðum við jarðaförina þótt það sé stutt til jóla. Við ætlum að fara á þriðjudaginn og koma heim á sunnudaginn. Mamma hans Jasons var búin að kaupa flug hingað til okkar á sunnudaginn og ætlaði að vera yfir jólin þannig að við munum öll fara á sunnudaginn hingað til San Diego þó með sitthvoru flugfélaginu.
Fyrir 2 árum


3 skilaboð:
Samhryggist ykkur innilega !
Rúna
Ég samhryggist ykkur og vona að ferðalagið gangi vel. Það verður gott að fara og vera við jarðarför og kveðja þennan mann og hitta alla ættingjana. Við erum allar ríkar og enn ríkari þegar við gerum okkur einmitt grein fyrir því. hAfðu það gott og þú ert sterk valkyrja:)
Eg samhryggist.
kv,
Huld
Skrifa ummæli