Já það er aldeilis búið að vera spennandi tími hérna í Bandaríkjunum í dag er einu sögulegustu kosningar hér í landi fóru fram. Ég fékk nú ekki að kjósa þetta skiptið þar sem ég er ekki enn komin með ríkisborgararétt en ég er svo ánægð að Obama vann að ég er varla að ná mér! Tími til komin fyrir breytingar í stjórnkerfi USA og vonandi verða þessar breytingar til hins betra. Ég hef í gegnum allan þennan tíma haldið með Obama vegna þess að hann vill breyta menntakerfinu hérna, eða ekki breyta því heldur endurskoða stefnu sem hefur verið ríkjandi í gegnum tíð Bush sem kallast No Child Left Behind. Þessi stefan er svo vitlaus og er ekki að skila þeim árangri sem hún ætti að gera, en því miður þá var hún jú skrifuð með góðum tilgangi en algjörlega ógerlegt að framkvæma hana. Það sem hún gengur út á er að allir nemendur eigi að eiga sömu réttindi á bestu menntun sem möguleg er með bestu kennara sem hægt er að fá. Auðvitað er þetta yndisleg stefan að nafninu til en það sem fólk var og er ekki að gera sér grein fyrir er að þessi stefna gerði ekkert annað en að koma niður á þeim nemendum sem standa sig vel því kennarar þurfa svo mikið að hjálpa þeim nemendum sem ekki eru að standa sig og hinir þurfa því að standa hjá. Þetta er því miður ekki ásættanlegt og hefur þessi stefna ekki gert neitt annað en að ýta undir þetta því þeir fara eftir samræmdum prófum og þeir skólar sem ekki standa sig missa fjármögnun til skólans og kennarar geta verið reknir. Flestir kennarar sem ég hef unnið með og þekki eru mjög svo mótfallnir þessarri stefnu því annað sem gerist er að kennarar hafa lítinn tími til að fara útfyrir efnið og leyfa nemendum sínum að explore outside the box eins og það kallast því þeir hafa alltaf samræmdu prófin hangandi yfir sér og fara ósjálfrátt að kenna bara fyrir prófin, eða það sem þeir vita að verður á prófinu. Þetta hefir auðvitað það sem kennarinn getur kennt og þann lærdóm sem nemendurnir gætu fengið! Obama vildi endurskoða þetta frá A-Ö en McCain vildi einungis breyta þessarri stefnu lítilega en halda henni að mestu. Það var jú margt annað sem hafði áhrif á mig en þetta var það stæsta. Einnig var margt sem ég er ósammála Obama um en það vóg minna en það sem ég var ósammála McCain.
Það er alveg yndislegt að fá að vera hérna í USA og fá að upplifa þessa mögnuðu tilfinningu og finnst mér að Íslendingar ættu að taka sér þetta til fyrirmyndar og krefjast nýrrar kosninga í landinu.......þá meina ég þingkosninga.
Knús,
Sigurborg
Fyrir 2 árum


2 skilaboð:
Eg er sammala ther Sigurborg med "no child left behind program". Thad hefur goda moguleika en thad tharf ad endurskoda margt i thvi. Eg finn thad hja kennurunum ad their focusa mikid a thad sem bornin "thurfa" ad laera til ad meet national standards. Reyndar er skoli barnanna minna meirihluti minorities, African-Americans ,Asians og hispanics og til ad allir fai somu taekifaeri thratt fyrir economic status og race tha eru bekkirnir i skolanum minni, kindergarten er all day, aukakennsla i bodi fyrir tha sem thurfa a thvi ad halda og gifted program i bodi fyrir tha sem skara fram ur. Eg ELSKA thetta. En a moti tha eru krakkar til daemis i bekk med Emmu sem thurfa svo mikla hjalp til ad geta pass kindergarten ad their taka alla athygli kennarans. Their hafa nefnilega ekki the basic skills fra preschool sem er mjog mikilvaegt. Thetta er eitt sem eg er MJOG oanaegd med og kvartadi i byrjun arsins yfir. Emma sem tekur vel eftir, elskar ad laera og hefur godan grunn og er stillt og god "gleymdist"bara uti i horni. Hun fekk ekki tha kennslu sem hun a skilid. Eftir ad eg taladi vid kennarann sa eg samt goda breytingu og eg fylgist VEL med ollu og styd vel vid bakid a minum bornum herna heima. Eg vona ad Obama breyti thessu ollu til betra. Eg er svo spennt ad sja hlutina sem allir aetlar ad breyta.
Ohh, sammála þér með Obama, við vorum mjög svo glöð með sigur hans. Ég þekki ekki þessa stefnu, No child left behind en það sem þú segir um hana þá er ég sammála þér..sem "gamall" kennari þá er ekki hægt að setja alla nem undir sama hatt-bara eins og alla aðra. Hafðu það gott venan:)
Skrifa ummæli