22. nóvember 2008

wii wii wii wii wiiiiiiiiiiiiiiiiiiii

okay.. svo við keyptum okkur Wii-ið fyrir peningana sem foreldrar okkar beggja gáfu okkur eða gefa okkur í jólagjöf og því miður stóðumst við ekki mátið og opnuðum pakkan bara strax og settum þetta upp!! Haldiði að það sé.. fullorðið fólk sem gerir svona hluti, haha. Allavegna, í dag þá keypti ég mér á ebay svolítið sem heitir wii fit, það er svona balancing bretti sem maður tengir við wii-ið og gerir allskonar leikfimi á því, skíða, jóga, boxa, hoppa, hlaupa, húlla og fleira og fleira. Mig er búið að langa í þetta wii fit lengur en wii-ið sjálft en maður þarf jú tölvuna fyrst og svo aukahlutina. Allavegna, það var góður díll á þessu á ebay, eða á ég að segja fann ég dílinn í gegnum krókaleið sem kunningjakona mín sagði frá og fékk ég wii fit fyrir $100 með frírri heimsendingu... sparaði mér sem sagt $34 á wii fittinu sjálfu og svo auðvitað sendingarkostnaðinn! Þetta ætla ég að hafa bara sem jólagjöf handa sjálfri mér :o) Líst ykkur ekki vel á það bara.

Já svo er litla skvísan 3ja ára á morgun. Finnst það eitthvern vegin svo óraunverulegt að það eru litið þrjú ár síðan ég var komin á steypirinn og á leiðinni að eiga mitt fyrsta barn. Tíminn líður bara allt of hratt, á gervihnatta öld eins og Gleðibankinn söng hérna í denn..........

En já... bara langaði að monnta mig smá......

knús,
sigurborg

1 skilaboð:

Valkyrjan sagði...

Ohhh nú brosi ég ... við erum einmitt búin að skrifa sveinka um Wii ... he he .... vonum að það verði undir trénu á Jóladagsmorgun ! Til hamingju með frumburðinn ! Mín verður 2 ára á laugardaginn !

Rúna