.. já það er þreyta og veikindi sem hafa einkennt þessa viku sem er nú sem betur fer litið. Mamman sjálf búin að vera að díla við eitthverja leiðindar kvefpest með tilheyrandi hita og vesens... hef því ekki mikið verið hérna við tölvuna. Síðan er litla prinsessan búin að vera frekar slöpp og er enn soldið hás alla vikuna líka... og núna virðist sem litli prinsinn sé að byrja... auðvitað svona þegar okkur hinum er að batna. Virðist eins og maður fái aldrei frið.
Annars er lítið annað að frétta af okkur nema veikindin. Við héldum jú upp á afmæli litlu prinsessunnar í vikunni, já 10 dögum fyrir afmælisdaginn en það er svona að eiga afmæli í kringum Thanksgiving.. aldrei neinn heima og ákvað ég því að halda lítið playgroup boð fyrir litlu vini hennar hérna úti svona svo hún gæti fengið að fá smá krakkaafmæli. Það var mjög gaman hjá henni, ég bjó til Dora köku sem heppnaðist svona rosalega vel og var æðislega góð! Svo er náttúrulega afmælisdagurinn á sunnudaginn kemur (23 nóv) og ætlum við fjölskyldan bara að gera okkur glaðan dag með því að fara að sjá skrúðgöngu hér í bænum sem þannig séð merkir upphaf hátíðarhaldanna (jól og Thanksgiving). Svo förum við örugglega með hana út að borða og gerum eitthvað skemmtilegt fyrir hana. Ég er búin að kaupa dúkkuhús með ÖLLU handa henni frá okkur, meira að segja dúkkubíll með. Keypti þetta notað fyrir um $75 en konan sem var að selja þetta átti þriggja ára stelpu sem fékk tvö dúkkuhús í afmælisgjöf í sumar og hafði aldrei leikið með þetta hús heldur bara Doru dúkkuhúsið sitt svo hún ákvað að selja það. Fullt verð á þessu húsi er um $135 plús bíllinn kostar um $25 þannig að mér finnst ég hafa gert góð kaup :o)
Jæja, læt þetta duga í bili.. þarf að fara að koma mér að læra þar sem það eru verkefnaskil í kvöld.
Knús og kossar,
sigurborg
Fyrir 2 árum


0 skilaboð:
Skrifa ummæli