3. nóvember 2008

mánudagur.... er hann til mæðu??

Allavegna líður mér þannig í dag. Er búin að vera með hausverk upp á hvern einasta dag núna síðastliðna 4 daga og er að verða frekar þreytt á því. Það er kalt hérna í húsinu mínu í kvöld... setti hitann á, skreið upp á 3ju hæð og undir sæng þar sem ég sit núna, horfi á sjónvarpið og skrifa þetta blogg. Ég er þreytt, mér er kalt og svíður í nefið. Hef verið að velta því fyrir mér hvort ég sé með eitthvers konar ofnæmi því í hvert skipti sem ég dreg inn andann í gegnum nefið er eins og að hníf sé stungið í gegnum nefið á mér og fær mig til að svíða langt upp í heila!

En já... Ég fór aftur í ræktina í morgun... verð að fara alla daga þessarrar vikur til að bæta upp fyrir síðustu tvær vikur. Kílóhrunið hefur heldur betur hægt á sér í kjölfarið en vonandi fer það á skrið aftur ef ég næ að halda mig við ræktina þessa vikuna og allanr næstu vikur þar á eftir. Ég hef misst hvað, 7.5kg síðan í byrjun ágúst mánaðar sem er ekki svo slæmt. Verð reyndar að viðurkenna að læknirinn minn hérna í kaliforníu setti mig á eitthver offitu lyf sem hefur þau áhrif að matarlystin er ekki eins og hún var og örfar brennslu einnig. Þetta lyf hefur reynst mér vel, hefur virkilega haft áhrif á allskonar sykur/kolvetnis langanir sem ég þjáðist mikið af hérna áður fyrr og sleni. Slenið hefur mikið horfið og ég var farin að fara í ræktina á hverjum degin fyrir utan helgar viku eftir að ég byrjaði á því. Ég finn líka hvernig hugur minn er einbeittari og finnst mér ég betur fær að velja réttan mat og spá virkilega í það hvað ég er að borða og auðvitað hvað mikið. Ég get ekki borðað helming af því sem ég borðaði hérna áður fyrr. T.d. pizzu... ég gat léttilega dorgað í mig þremur pizzasneiðum og buffalo vængjum einnig í sömu andránni og samt enn verið nokkuð svöng. Núna er ég heppin ef ég kem einni sneið niður. Við hættum líka að kaupa gos fyrir heimilið er við fluttum hingað og drekkum ekkert nema vatn, nema þá að við séum eitthvers staðar úti þá kaupum við stundum hálfan líter og deilum honum. Stundum kaupum við jú 2L gos ef við erum að fá gesti but that is it! Allt þetta, sem sagt hætt gosþambi, hætt í sykursulli, borða meira prótein og fituminni matur sem og hreyfing hefur haft það að verkum að loksins er ég farin að missa kg sem festust á mig við smíðar tveggja yndislega gríslinga. Ég er núna komin í þá þyngd sem ég var er ég varð ólétt af Alexander og á því 10 kg eftir til að komast í þá þyngd sem ég var er ég varð ólétt af Penný skvís.... þá á ég bara svona 5-7kg eftir til að koma mér niður í kjörþyngd.... ekki slæmt það.

Jæja... bið að heilsa í bili..... hafið það gott yndislegu vinir where ever you are in the world!
sigurborgin

3 skilaboð:

Unknown sagði...

Þú stendur þig ótrúlega vel skvís ;)

Nafnlaus sagði...

Hæ, rakst a bloggid thitt fyrir tilviljun. Thu ert otrulega dugleg.. Ohh ég thyrfti lika svo ad taka mig á. En Alltaf er thad á morgunn.. : / Veistu nokkud hvort thad sé svona studnins-grúppa á netinu`?!
kv. Lena

Dagbok Huldar sagði...

Flott hja ther Sigurborg. :) Vonandi lidur ther fljott betur.
kv
Huld