.. sem byrjaði með einum af þeim besta og auðveldasta kvöldmat sem ég hef gert í langan tíma. Ég tók út úr frystinum í morgun nautahakk og ítalska pulsur (sweet italian sausage) og var nú ekki alveg með á hreinu hvað ég ætti að búa til úr þessu. Fór inn á recipezaar.com og setti þar inn italina sausage í leitina og fann uppskrift af ítölskum kjöthleif (italian style meatloaf). Uppskriftin er hægt að finna hérna.... http://www.recipezaar.com/Our-Favorite-Meatloaf-330448 Þetta var æðislegur matur. Við höfðum svo með þessu hvítlauksbrauð og mmmmmmmmmm. Ég fór svo út í apótek til að fá ofnæmislyfið fyrir Alex og keypti líka popp og kók og poppaði fyrir okkur áður ne háttatíminn kom. Reyndar leyfði ég krökkunum að vaka hálftíma lengur, eða til kl. hálf níu, þótt þau hafi nú ekki sofnað fyrr en um níuleitið. Ég spilaði Wii bowling með þeim, reyndar voru þau ekki að leika en ég leyfið þeim að halda að þau væru að leika, haha.. yndislegt að þau séu svona vitlaus enn sem komið er. Það verður nægur tími í framtíðinn fyrir þau að rústa múttu gömlu í bowling eða baseball í Wii-inu. Ég er að pæla að fá mér Wii fit líka því ég á $100 gjafakort í Walmart online (myndi nota það í mat ef ég gæti notað gjafakortið í búðinni en svo er ekki) en það er uppselt eins og er. Kannski kemur það aftur fyrir jól. Við hjónin spiluðum síðan bowling eftir að börnin voru gengin til svefns og ég rústaði manninum mínum í öllum þeim fjórum leikjum sem við spiluðum, hahahahahahahaha. Hann er svo innilega tapsár þessi elska og sérstaklega þegar kemur að bowling því það er ein sú íþrótt sem hann tekur ekki léttilega. Mamma hans var amature bowling manneskja hérna áður fyrr, var í bowling liði sem fór um landið og keppti og alles og hann hefur stundað bowling síðan hann var lítill. Þannig að þegar litla sæta konan hans var að rústa honum tók hann því ekki léttilega sem gerði þetta SVO fyndið. Hann er yndislegur þessi elska. Við erum því bæði tvö að drepast í hægri upphandleggnum, sem ég verð að segja að ég er ánægð með að hafa ekki æft efrihluta líkamans í morgun í ræktinni. Ég fékk einungis 35 mín. í ræktinni í morgun því litli prins var að sofna svo ég varð að drífa okkur heim áður en það gerðist því það myndi algjörlega hafa ruglað daglúrnum hans.
En já... sem sagt yndislegu kveldi að ljúka og núna er bara að fara í bólið því við verðum að vakna öll snemma á morgun og keyra kallinn í vinnuna, því ég var of löt til að vakna í morgun.
Kv,
Sigurborg
Fyrir 2 árum


0 skilaboð:
Skrifa ummæli