18. nóvember 2008

Þessi vika....

... verður svolítið erfið. Jason er í nýjum skóla, eða ef svo má segja sem tekur mikinn tíma þessa vikuna. Hann er farinn að heiman langt fyrir sólupprás og er rétt að koma heim er sólin sest. Þar sem við höfum bara einn bíl þýðir það að við krakkarnir höngum heima alla vikuna, fyrir utan morgundaginn því ég ætla að rífa börnin snemma upp og keyra kallinn í vinnuna til að hafa bílinn. Ætla síðan að transportast með krakkana í outlet mollið á landamærum mexíkó og kíkja í búðir.. athuga hvort ég finn eitthvern sætan kjól fyrir skvísuna sem á afmæli á sunnudaginn. Ég gerði samt margt í dag þótt ég hafi ekki yfirgefið húsið at all. Ég bjó til deig fyrir bóndakökur og kókosúkkulaðikökur sem ég ætla síðan að baka á morgun, eða á eftir, haha... spurning um að gera það bara á eftir. Ég eldaði æðislegan kvöldmat en einfaldan... bjó til mín eigin kjúklinganagga sem er það auðveldasta í heimi, bakaði síðan franskar og bjó til bestu kokteilsósu í HEIMI!!! mmm.. þetta var svo gott.

Við erum samt enn í miklu veseni með Penelope og pissustand. Hún er enn að pissa allt of oft á sig og í gær og í dag hefur hún 4x pissað bara beint á gólfið. Þrisvar á baðherbergisgóflið og einu sinni í gærkveldi á stofugólfið. Sem betur fer á ég teppahreinsi og gat hreinsað teppið strax. En þetta er að verða ansi þreytandi og hún er enn, næstum þriggja ára, með bleyju á næturnar því hún sefur svo fast að hún vaknar ekki er henni er mál og pissar því í sig. Hún sefur það fast að hún vaknar ekki einu sinni við það að vera pissublaut! Ég vona samt að einn góðan veðurdaginn mun hún hætta þessu veseni, en þangað til mun hún fá bleyju yfir nóttina því ég hreinlega nenni ekki að þvo pissublaut föt og sængurföt á hverjum degi.

Jæja.. best að hætta þessu röfli... er að horfa á the Biggest loser og ætla svo á skíðavélina eftir það út í bílskúr þar sem ég fór ekki í ræktina í dag.

Knús,
Sigurborg

5 skilaboð:

Nafnlaus sagði...

Það er meira hvað mín er myndó.. Heimalagaðir kjúklinganaggar og bakað og alles..

Þetta pissuvesen kemur hjá stelpunni, það tekur bara tíma..

Bestu kveðjur frá Sikiley,
Linda

Dagbok Huldar sagði...

Hae sigurborg. Eg myndi skella a hana bleyju i manud eda svo og reyna svo aftur. Hun er kannski pinu anxious yfir klosettmalunum nuna og thad tharf kannski ad taka stressid fra henni i sma tima. Svo eftir manud skaltu fara med hana og leyfa henni ad velja ser sinar eigin prinsessu naerfot og reyna aftur. Tha mun thad orugglega ekki taka nema nokkra daga og haldast betur. Thetta er allaveganna mitt rad. :)
kv
Huld

Valkyrjan sagði...

Treystu mér þetta gerist á þeirra tíma ! Kristofer tok sinn tima en þegar hann ákvað að gera þetta var varla slys ! Nú er Alexandra að verða 2 ára og ég hugsa bara til bardagans með Kristofer og liggur við að ég bíði þangað til hún er 4 ára ... ha ha ... neiii ætli ég bara skelli mér ekki í þetta á nýju ári !

Dugleg kona að baka ... vantar þau gen í mig !

Rúna

Sigurborg aka Sig sagði...

já það yrði nú svolítið erfitt að setja bleyju aftur á hana þar sem hún hætti með bleyju fyrir tæpum 10 mánuðum síðan. Þetta er bara eitthvað sem gerist endrum og eins á daginn en alltaf á næturnar þannig að á næturnar verður hún enn með bleyju, eða þangað til hún verður orðin þurr í soldið langan tíma á morgnanna.

Ameríkufari segir fréttir sagði...

Ég segi það sama og hinar-þetta kemur og hún er bara rétt þriggja ára. Sagt er að það sé munur milli kynja og að stelpur séu fljótari en strákar en Eyjólfur var orðinn þriggja og hálfs þegar hann hætti alveg og ég sé að einn tæpra fjögurra í bekk með honum er enn á bleiu þannig að þau eru misjöfn en ég veit líka að ég er ekki að segja þér neitt sem þú veist ekki því auðvitað er þetta hvimleitt en Penelope er valkyrja og mamman líka þannig að á endanum kemur þetta allt saman.
Gaman að sjá hversu myndó þú ert og ég vona að dagurinn í dag hafi verið skemmtilegur svona úr því að þið komust út úr húsi:)